Jesaja 19:1–25

  • Yfirlýsing gegn Egyptalandi (1–15)

  • Egyptar fá að kynnast Jehóva (16–25)

    • Altari handa Jehóva í Egyptalandi (19)

19  Yfirlýsing gegn Egyptalandi: Jehóva kemur til Egyptalands ríðandi á hraðfara skýi. Gagnslausir guðir Egyptalands skjálfa frammi fyrir honumog hjörtu Egypta bráðna af ótta.   „Ég egni Egypta gegn Egyptumog þeir berjast hver við annan,hver maður við bróður sinn og nágranna,borg gegn borg og ríki gegn ríki.   Egyptar verða ráðvilltirog ég geri áform þeirra að engu. Þeir leita til gagnslausra guðanna,til særingamanna, miðla og spásagnarmanna.   Ég sel Egypta í hendur hörðum húsbóndaog harðráður konungur mun ríkja yfir þeim,“ segir hinn sanni Drottinn, Jehóva hersveitanna.   Vatnið í hafinu þornar uppog fljótið verður vatnslaust og þurrt.   Ódaun leggur af fljótunum,Nílarskurðir Egyptalands tæmast og þorna. Sefið og reyrinn visna.   Gróðurinn meðfram Níl, við ósa Nílarfljóts,og sáðlandið við Níl skrælnar. Allt fýkur burt og hverfur.   Fiskimennirnir syrgja,þeir sem renna öngli í Níl kveinaog þeim fækkar sem leggja net í ána.   Þeir sem vinna úr kembdum hörog þeir sem vefa hvítan dúk skammast sín. 10  Vefarar Egyptalands verða miður sín,allir launamenn syrgja. 11  Höfðingjar Sóan eru heimskir. Vitrustu ráðgjafar faraós gefa óskynsamleg ráð. Hvernig getið þið sagt við faraó: „Ég er kominn af vitru fólki,afkomandi fornra konunga“? 12  Hvar eru vitringar þínir núna? Láttu þá segja þér hvað Jehóva hersveitanna hefur ákveðið varðandi Egyptaland ef þeir vita það. 13  Höfðingjar Sóan hafa hegðað sér heimskulega,höfðingjar Nóf* látið blekkjast,ættarhöfðingjar Egyptalands hafa leitt fólk afvega. 14  Jehóva hefur ausið ringulreið yfir Egypta,höfðingjarnir hafa leitt þá afvega á öllum sviðumeins og drukkinn mann sem slagar í spýju sinni. 15  Egyptar áorka engu,hvorki höfuð né hali, rótarangi né sef.* 16  Á þeim degi verða Egyptar eins og konur sem skjálfa af ótta því að Jehóva hersveitanna reiðir ógnandi hönd sína gegn landinu. 17  Júdaland skýtur Egyptum skelk í bringu. Þeir skelfast um leið og minnst er á það vegna þess sem Jehóva hersveitanna hefur ákveðið varðandi þá. 18  Þann dag verður mál Kanaans* talað í fimm borgum Egyptalands og þær sverja Jehóva hersveitanna hollustu. Ein borgin verður kölluð Niðurrifsborg. 19  Þann dag verður altari handa Jehóva í miðju Egyptalandi og stólpi til heiðurs Jehóva við landamærin. 20  Það verður til tákns og vitnisburðar um Jehóva hersveitanna í Egyptalandi. Fólk mun hrópa til Jehóva undan kúgurunum og hann sendir þá mikinn frelsara sem frelsar það. 21  Jehóva mun opinbera sig Egyptum og Egyptar kynnast Jehóva á þeim degi. Þeir bera fram fórnir og gjafir og þeir vinna Jehóva heit og efna það. 22  Jehóva slær Egypta, slær þá og læknar síðan. Þeir snúa aftur til Jehóva og hann heyrir bænir þeirra og læknar þá. 23  Þann dag verður greiður vegur frá Egyptalandi til Assýríu. Assýringar koma þá til Egyptalands og Egyptar til Assýríu, og Egyptar munu þjóna Guði ásamt Assýringum. 24  Á þeim degi sameinast Ísrael Egyptalandi og Assýríu en það verður til blessunar fyrir jörðina 25  því að þá hefur Jehóva hersveitanna blessað fólkið og sagt: „Blessuð sé þjóð mín, Egyptar, verk handa minna, Assýringar, og Ísrael, arfleifð mín.“

Neðanmáls

Eða „Memfis“.
Eða hugsanl. „pálmagrein né reyrstilkur“.
Það er, hebreska.