Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

„Hafið slíka menn í heiðri“

„Hafið slíka menn í heiðri“

HIÐ STJÓRNANDI RÁÐ hefur frá árinu 1992 skipað reynda og þroskaða kristna öldunga til að aðstoða nefndir ráðsins við störf sín. * Þessir aðstoðarmenn af ,öðrum sauðum‘ veita hinu stjórnandi ráði dýrmætan stuðning. (Jóh. 10:16) Þeir sækja vikulega fundi nefndarinnar sem þeim er falið að vinna með, veita henni upplýsingar og leggja fram tillögur. Bræðurnir í hinu stjórnandi ráði taka allar endanlegar ákvarðanir en aðstoðarmennirnir hrinda í framkvæmd því sem ákveðið er og sinna öllum verkefnum sem þeim eru falin. Aðstoðarmennirnir fylgja bræðrunum í hinu stjórnandi ráði á sérstök mót og alþjóðamót. Stundum er þeim falið að heimsækja deildarskrifstofur sem fulltrúar aðalstöðvanna.

Einn bræðranna, sem hefur verið aðstoðarmaður síðan þetta fyrirkomulag tók gildi, segir: „Þegar ég sinni þeim verkefnum, sem mér er úthlutað, getur hið stjórnandi ráð einbeitt sér betur að þeim verkefnum sem snúa að andlegu málunum.“ Annar bróðir, sem hefur verið aðstoðarmaður í tvo áratugi, segir: „Þetta er ómetanlegur heiður, meiri en mig hafði nokkurn tíma órað fyrir.“

Hið stjórnandi ráð ber mikið traust til aðstoðarmanna sinna og kann vel að meta þá góðu þjónustu sem þessir tryggu og vinnusömu bræður veita. Við skulum öll ,hafa slíka menn í heiðri‘. – Fil. 2:29.

^ Sjá nánari upplýsingar um störf nefndanna sex, sem starfa undir hinu stjórnandi ráði, í greininni „Hvernig gætir hið stjórnandi ráð hagsmuna Guðsríkis á jörð?“ í 12. kafla bókarinnar Ríki Guðs stjórnar.