Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 76

Hvaða kennd finnur þú?

Hvaða kennd finnur þú?

(Hebreabréfið 13:15)

  1. 1. Hvaða kennd finnur þú

    er þú tjáir þína trú,

    veist að allt þú hefur gert

    til að fá hjarta snert?

    Hafir þú gert allt þitt

    treystu Guði’ að sjá um sitt.

    Hreinu hjörtun þekkir öll

    og heyrir einlæg köll.

    (VIÐLAG)

    Við erum glöð því fölskvalaust

    við notum huga, mátt og raust.

    Með ávöxt vara lofum þig,

    gerum það sleitulaust.

  2. 2. Hvaða kennd finnur þú

    þegar orð þín byggja brú

    að því hjarta sem er hreint,

    til lífs því getur beint?

    Sumir ei hlusta á,

    aðrir láta leiðast frá.

    Samt við berum nafn Guðs glöð

    og erum hvergi rög.

    (VIÐLAG)

    Við erum glöð því fölskvalaust

    við notum huga, mátt og raust.

    Með ávöxt vara lofum þig,

    gerum það sleitulaust.

  3. 3. Hvaða kennd finnur þú

    þegar hjálp Guðs reynist drjúg

    og að hann þér felur starf

    að sinna því sem þarf?

    Orð okkar mild en skýr

    sýna hvað í hjarta býr.

    Fólk við leiðum í Guðs sátt,

    verkinu lýkur brátt.

    (VIÐLAG)

    Við erum glöð því fölskvalaust

    við notum huga, mátt og raust.

    Með ávöxt vara lofum þig,

    gerum það sleitulaust.