Geta kristnir menn þegið læknismeðferð?
Svar Biblíunnar
Já. Jesús sagði óbeint að fylgjendur hans gætu þegið læknismeðferð þegar hann sagði: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru.“ (Matteus 9:12) Þótt Biblían sé ekki kennslubók í læknisfræði hefur hún að geyma meginreglur til leiðsagnar þeim sem vilja þóknast Guði.
Hugleiddu eftirfarandi spurningar
1. Skil ég í hverju fyrirhuguð meðferð felst? Biblían mælir með því að við öflum okkur áreiðanlegra upplýsinga í stað þess að vera eins og sá sem „trúir öllu“. – Orðskviðirnir 14:15.
2. Ætti ég að leita álits hjá fleiri en einum lækni? Það getur verið gagnlegt þegar „margir leggja á ráðin“, sérstaklega þegar um alvarleg veikindi er að ræða. – Orðskviðirnir 15:22.
3. Gengur aðgerðin í berhögg við fyrirmæli Biblíunnar um að ,halda sig frá blóði‘? – Postulasagan 15:20.
4. Tengist sjúkdómsgreiningin eða meðferðin andatrú? Biblían fordæmir „fjölkynngi“, það er að segja andatrú. (Galatabréfið 5:19-21) Til að kanna hvort um andatrú sé að ræða er gott að hugleiða eftirfarandi spurningar:
Stundar sá sem annast meðferðina andatrú?
Byggist meðferðin á þeirri trú að reiðir guðir eða einhverjir óvinir, sem stunda galdra, valdi veikindunum?
Eru fórnir, töfraþulur, notkun hluta eða önnur andatrúariðkun viðhöfð þegar lyfið er búið til eða notað?
5. Er ég að verða of upptekinn af heilsufari mínu? Biblían segir: ‚Verið sanngjörn.‘ (Títusarbréfið 3:2) Ef við höfum sanngjarnt og skynsamlegt viðhorf til heilsunnar þá eigum við auðveldara með að sjá „þá hluti rétt sem máli skipta“, eins og andleg mál. – Filippíbréfið 1:10; Matteus 5:3.