LÖND OG ÞJÓÐIR
Heimsókn til Kambódíu
FLJÓTANDI ÞORP, iðandi mannlíf með líflegum mörkuðum og götum fullum af fólki á mótorhjólum að flytja lifandi hænsni, ísskápa og allt þar á milli. Þetta er aðeins brot af því sem maður sér og heyrir á ferðalagi um Kambódíu.
Fólkið í landinu er þekkt fyrir að vera hlýlegt, vingjarnlegt og mjög samheldið. Þegar það hittist við óformlegar aðstæður kallar það stundum hvert annað bróður, systur, frænku, frænda, ömmu eða afa – jafnvel þótt það hafi aldrei hist áður.
Hrísgrjón eru áberandi í kambódískri matargerð. Dæmigerð máltíð er þriggja til fjögurra rétta og er súpa oft einn þeirra. Fiskur er mikið eftirlæti. Algengt er að bera fram sæta, súra og salta rétti í einni og sömu máltíðinni.
Fyrir um tvö þúsund árum fóru indverskir kaupmenn og pílagrímar að leggja leið sína um strendur Kambódíu á ferðum sínum til Kína. Þeir fengu kryddjurtir, ilmvið, fílabein og gull í skiptum fyrir silki og málma. Smám saman varð landið fyrir áhrifum frá Indlandi og Kína, og hindúismi og búddismi náðu að skjóta rótum. Núna eru yfir 90 prósent íbúa Kambódíu búddatrúar.
Vottar Jehóva boða íbúum Kambódíu boðskap Biblíunnar. Þeir hafa notað bókina Hvað kennir Biblían? til þess að fræða marga um vonina sem Biblían hefur að geyma. Bókin er fáanleg á um 250 tungumálum, þar á meðal kambódísku.
Bókin Hvað kennir Biblían?, gefin út af Vottum Jehóva, er fáanleg á kambódísku (sýnd hér).