Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FORSÍÐUEFNI

Að temja sér góðar venjur

Að temja sér góðar venjur
  • AUSTIN er þreyttur þegar vekjaraklukkan hringir. Hann fer samt strax fram úr, klæðir sig í æfingafötin sem hann tók til kvöldið áður og fer út að skokka. Þetta hefur hann gert þrisvar í viku í heilt ár.

  • Laurie var að rífast við manninn sinn. Reið og pirruð strunsar hún fram í eldhús, grípur poka af súkkulaði og hámar í sig alla bitana. Þetta er hún vön að gera í hvert sinn sem hún kemst í uppnám.

Hvað eiga Austin og Laurie sameiginlegt? Hvort sem þau gera sér grein fyrir því eða ekki gera þau hlutina af gömlum vana. Og það er erfitt að leggja af rótgróinn vana.

Hvað með þig? Langar þig til að koma þér upp einhverjum góðum venjum eins og til dæmis að hreyfa þig reglulega, fá meiri svefn eða hafa meira samband við vini og ættingja?

Eða langar þig til að leggja af slæman ávana, eins og að reykja, borða of mikið ruslfæði eða eyða óhóflegum tíma á Netinu?

Að vísu getur verið hægara sagt en gert að leggja af slæman ávana. Rétt eins og það er freistandi að skríða aftur upp í hlýtt rúmið á köldum degi er mun auðveldara að temja sér slæman ávana en að losa sig við hann.

Hvernig er hægt að temja sér venjur sem koma manni að gagni í stað ávana sem eru manni til ills? Skoðaðu eftirfarandi þrjár tillögur sem eru byggðar á ráðum Biblíunnar.