Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FORSÍÐUEFNI | LANGAR ÞIG TIL AÐ KYNNA ÞÉR BIBLÍUNA?

Biblíunámskeið fyrir alla

Biblíunámskeið fyrir alla

Vottar Jehóva eru þekktir fyrir að boða fólki trúna. En vissirðu að við höldum líka biblíunámskeið út um allan heim?

Árið 2014 héldu rúmlega 8.000.000 votta Jehóva biblíunámskeið í hverjum mánuði með tæplega 9.500.000 manns í 240 löndum. * Þeir sem sækja biblíunámskeið hjá okkur eru því fleiri en íbúar 140 einstakra landa!

Til að sinna þessu fræðslustarfi gefa Vottar Jehóva út tæplega einn og hálfan milljarð biblía, bóka, tímarita og annarra biblíunámsgagna á hverju ári – á um það bil 700 tungumálum! Þessi útgáfustarfsemi, sem á sér enga hliðstæðu í heiminum, gerir fólki kleift að kynna sér Biblíuna á því tungumáli sem það skilur best.

SVÖR VIÐ ALGENGUM SPURNINGUM UM BIBLÍUNÁMSKEIÐIÐ

Hvernig fer námskeiðið fram?

Við tökum fyrir mismunandi viðfangsefni og könnum biblíuvers sem tengjast því. Biblían svarar til dæmis spurningum eins og þessum: Hver er Guð? Hvernig er hann? Heitir hann eitthvað? Hvar er hann? Er hægt að eiga náið samband við hann? Til að fá svörin þarf maður að vita hvar í Biblíunni þau er að finna.

Til að auðvelda fólki að finna svörin notum við yfirleitt bókina Hvað kennir Biblían? * Þessi 224 blaðsíðna bók var sérstaklega samin til að auðvelda fólki að öðlast skilning á grundvallarkenningum Biblíunnar. Í bókinni eru kaflar sem fjalla meðal annars um Guð, Jesú Krist, bænir, upprisu frá dauðum, af hverju mennirnir þjást og margt fleira.

Hvar og hvenær fer námskeiðið fram?

Námskeiðið er haldið á stað og tíma sem hentar þér.

Hve langar eru námsstundirnar?

Flestir velja að nota um það bil klukkutíma í biblíunámsstundina í hverri viku. En það getur verið breytilegt. Hægt er að aðlaga námstímann að þinni dagskrá. Hjá sumum er námsstundin aðeins 10 eða 15 mínútna löng í hverri viku.

Hvað kostar námskeiðið?

Námskeiðið og námsgögnin eru ókeypis. Það er í samræmi við leiðbeiningarnar sem Jesús gaf lærisveinum sínum: „Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.“ – Matteus 10:8.

Hve lengi stendur námskeiðið yfir?

Það er undir þér komið hve lengi námskeiðið stendur yfir. Í bókinni Hvað kennir Biblían? eru 19 kaflar. Þú getur farið yfir alla kaflana í bókinni, eða farið yfir valda kafla, og gert það á þeim hraða sem þér hentar.

Verð ég að gerast vottur Jehóva?

Nei. Við gerum okkur fulla grein fyrir að hver og einn hefur rétt til að ákveða sjálfur hverju hann kýs að trúa. Þeir sem hins vegar afla sér grunnþekkingar á Biblíunni geta tekið upplýsta ákvörðun.

Hvar get ég fengið meiri upplýsingar?

Á vefsíðunni jw.org/is er að finna áreiðanlegar upplýsingar um trúarskoðanir og starfsemi Votta Jehóva.

Hvernig get ég óskað eftir biblíunámskeiði?

  • Fylltu út beiðni um biblíunámskeið á vefsíðunni www.dan124.com/is.

  •  
  • Hafðu samband við söfnuð Votta Jehóva á þínu landsvæði með því að fletta upp á „Vottar Jehóva“ í símaskránni.

^ gr. 4 Á hverju biblíunámskeiði er yfirleitt einn nemandi eða fámennur hópur.

^ gr. 9 Bókin er gefin út af Vottum Jehóva. Rúmlega 230 milljónir eintaka hafa verið prentaðar á meira en 260 tungumálum.