Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

JW LIBRARY

Fyrstu skrefin í JW Library – iOS

Fyrstu skrefin í JW Library – iOS

Velkomin! Appið JW Library er hannað fyrir þá sem vilja lesa og rannsaka Biblíuna og biblíutengd rit. Þú getur flakkað á milli helstu hluta forritsins með því að velja hnappana á stikunni neðst á skjánum.

 Biblían

Undir Biblían er að finna biblíuþýðingar á fjölda tungumála. Veldu biblíubók og síðan kafla til að byrja að lesa. Í námsglugganum getur þú skoðað neðanmálsathugasemdir, millivísanir og borið saman þýðingar.

Flettu upp á öðrum ritningarstað með því að ýta aftur á Biblían. Þá færðu aftur upp listann yfir biblíubækurnar.

 Útgáfa

Undir Útgáfa er að finna rit, hljóðskrár og myndbönd á fjölda tungumála. Veldu rit og síðan grein til að byrja að lesa. Þú getur einnig flett upp ritningarstöðum sem koma fyrir í greininni. Veldu biblíuvísun til að sjá versið í námsglugganum. Þar geturðu síðan smellt á krækju til að opna versið í biblíunni.

Veldu aftur Útgáfa til að opna annað rit.

 Dagstexti

Veldu Dagstexti til að sjá dagstextann.

 Samkomur

Veldu Samkomur til að sjá ritin sem eru notuð á samkomu yfirstandandi viku.

 Á Vefnum

Veldu Á vefnum til að fá upp krækjur inn á opinber vefsvæði okkar.

 Sæktu nýjustu útgáfu

Sæktu nýjustu uppfærslurnar af JW Library til að vera viss um að þú getir nýtt þér allt sem appið hefur upp á að bjóða.

Gott er að hafa nýjustu útgáfuna af iOS sem er til fyrir tækið þitt. Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðu: https://support.apple.com/en-us/HT204204.

Þú getur virkjað sjálfkrafa uppfærslur forrita í stillingunum í tækinu þínu. Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðu: https://support.apple.com/en-us/HT202180.